(þessir broskallar koma af sjálfu sér. Ég er ekki aaaalveg svona hamingjusöm kannski!)
Jújú, flogin á brott>
Ég er komin til Danmerkur aftur, alla leið til Tvind, þar sem ég eyði
dögunum á bak við Biblíuna – eins og góðri stúlku sæmir. Þvílík lesning maður.>
Við erum að læra kristinfræði núna, sem áður fyrr var kölluð
trúarbragðafræði, en in these late days of rasism hefur verið breytt í
kristinfræði. Nú þarf maður ekki lengur að grýta lítil lituð innflytjendabörn
sem koma af gyðinga, búddista, hindúa eða islam ættum vegna þess að nú veit
menntaráðuneytið að kennarar skólanna taka það að sér að niðurlægja þau
opinberlega fyrir framan allan bekkinn þegar þeir hylla Jésú og allan hans
lærissneiðaher.
Takk fyrir, menntamálaráðuneyti.. ég var komin með krampa í axlavöðvana á
öllu þessu grjótkasti... />
> >
Allavega, það er fínt að ver dálítið betur að sér í þessum Jésúsarbókum. Ég
var þarna smá “lost” í einhvern tíma þegar ég var að velta því fyrir mér hvað
ég ætti að gera við þræl minn, eftir að ég stakk spjóti mínu í auga hans og
hrærði í heilanum á honum... eftir aðeins 5 daga af kvölum drapst hann. Guð
segir að ég þurfi ekkert að gera - hann hafi verið mín eign og ef hann er
dauður, þá er það mitt mál. Mín refsing er að ég þurfi að taka til minn eigin skít þar til ég
veiði mér nýjan negra í þrælahald... Guði sé lof... />
Okkur var líka sagt að það sé ekki nauðsynlegt að vera trúaður, en fyrir
kennara sé mikilvægt að vita um Kristna trú, því við komum til með að kenna
hana. >
Ég hef doltið verið að spá hvað litlum svertingjabörnum sem ég kem til með
að kenna í Afríku finnist um dauða þræls míns og alla siðfræði Guðs á bakvið
það mál... />>
>Kannski eins gott að Afríkanar eru auðtrúa og illa menntaðir - annars þyfti kirkjan að hafa meira fyrir því að "frelsa" þá alla. Það eina sem þeir segja við þá er "ef þú trúaður, og borgar okkur tíund af eigum þínum og launum, lánar okkur konuna þína og hegðar þér vel... þá verður þú bara aldrei svangur í himnaríki!". Og þarmeð er kaólska kirkjan búin að framkalla svakalegt babyboom í Afríku þar sem enginn notar smokka og allir gefa launin sín til hvítra presta! Amen.>
>
>
En back to real bissnes... Á tvem dögum náði ég að safna um 45.000 kr í
skólastyrki fyrir krakka í Mósambík með því að selja batík myndir, hér.Ég vona
að fólk sé ánægt með myndirnar. />
Ég veit að nemendurnir í Mósambík eru mjög snertir af góðmensku þeirra sem
keyptu mynd, og talandi um trú – fleiri en þið getið ímyndað ykkur hafa verið
bænheyrðir. Þegar einn nemandi fær styrk til náms þýðir það að svakalegu magni
af áhyggjum er létt af heilu fjölskyldunum. Þegar einn í fjölskyldunni kemst í
skóla – þá geta yngri systkini og frændsystkini dreymt um að fara í skóla líka,
því sá menntaði getur fengið vinnu og borgað fyrir þau skólagönguna. />
Fyrir hönd þeirra sem fengu skólagjöldin greidd langar mig að þakka öllum kærlega
fyrir hjálpina. Þau geta lítið sem ekkert gefið í staðin annað en að bjóða
ykkur velkomin í heimsókn hvenær sem er og biðja fyrir ykkur! Þið hafið bara
samband ef þið viljið frekari upplýsingar. />
> >
--- />
Ég fór á byggingarhelgi um daginn. Fyrir þá sem ekki vita þá er það partur
af skólanum mínum að fara á byggingarhelgi þar sem allir Tvind-heilaþvoðir taka
sig saman og byggja eins og einn skóla yfir helgi. Mjög sniðugt framtak, og
ekki óskemmtilegt ef rétt er haldið á spilunum. Þessa helgi áttum við að rífa
niður eitt stykki skóla og byggja upp á nýtt. Ég var öll útí blóði á
laugardeginum þar sem sleggjan hitti mig nánast allstaðar annarstaðar en á
veggina. Á sunnudeginum var svo “byggja upp” dagur og ég gat ekki blikkað
augunum fyrir steypu. Ég setti fötin mín í þvottavélina þegar ég kom heim aftur
og þegar ég tók þau úr þurkaranum.... *kling, kling*. Þau voru hörð. All of
them. Hlýtur að hafa verið sement í vasanum á peysunni. />
> >
Ég á dálítið erfitt með að sætta mig við tropíkalskt veðurfar Danmerkur.
Það er alltaf verið að spara rafmagnið í skólanum og næsta heita hver er á
Íslandi, svo það er lítið um upphitun á þessum slóðum. Ég er búin að labba um
með pinnharðar nibbur útí loftið síðan ég kom og Joschka, bekkjabróðir minn er
með lepp fyrir auganu eftir að ég nibbaði hann óvart í hausinn. Ég sakna
Mósambík allsvakalega. />
Spáin segir að næsta ferð út til Moz verði í september á þessu ári. Hver
er game í 6 mánaða áhlaup – opna með mér workshop fyrir götukrakka? />
Kossar og knús, />
Ína />
> >